Reglugerð orlofssjóðs
1.gr.
Reglugerð Orlofssjóðs Lyfjafræðingafélags Íslands
1. grein.
Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Lyfjafræðingafélags Íslands. Heimili hans og varnarþing er að Safnatröð 3, Seltjarnarnesi.
2. grein.
Aðeins félagar í LFÍ geta sótt um styrk úr sjóðnum. Úthlutun úr sjóðnum skal vera í samræmi við verklagsreglur Orlofsnefndar LFÍ.
3. grein.
Hlutverk sjóðsins er að:
- Rekstur, kaup eða leiga orlofshúsa fyrir félagsmenn LFÍ
- Veita niðurgreiðslur eða styrki til orlofs (t.d. sumarhús, hótel, tjaldsvæði, gjafabréf)
4. grein.
a) Ábyrgð stjórnar: Stjórn Sjóðsins skal ávallt gæta þess að sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar.
b) Til stjórnar orlofssjóðs skal kjósa tvo félagsmenn með almennri bréflegri eða rafrænni kosningu fyrir aðalfund til þriggja ára í senn. Ásamt kjörnum fulltrúum skal einn nefndarmaður kjaranefndar sitja í stjórn orlofssjóðs. Rísi ágreiningur um einstök atriði í reglugerð þessari, sker stjórn LFÍ úr honum.
c) Umsýsla og þóknun: Framkvæmdastjóri LFÍ ber ábyrgð á daglegri umsýslu sjóðsins. Sjóðurinn greiðir allt að 7% af tekjum sínum til LFÍ vegna umsýslu og þóknunar.
d) Ársreikningur: Reikningar sjóðsins skulu lagðir áritaðir fyrir aðalfund. Endurskoðendur LFÍ eru jafnframt endurskoðendur sjóðsins. Reikningsár sjóðsins er það sama og LFÍ.
5. grein.
Í ársskýrslu skal gerð grein fyrir úthlutun úr sjóðum.
7. grein.
Stjórn sjóðsins skal setja sér skriflegar verklagsreglur um meðferð umsókna og skulu þær birtar á heimasíðu LFÍ.
8. grein.
Um breytingar á reglugerð þessari fer á sama hátt og um lagabreytingar Lyfjafræðingafélags Íslands.
GILDISTAKA:
Reglugerð þessi var samþykkt á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 26.mars 2026