Reglugerð um sjóði í umsjón sjóðastjórnar
Reglugerð um sjóði í umsjón sjóðastjórnar
1. grein.
Sjóðirnir heita Fræðslusjóður og Vísindasjóður. Vísindasjóður er varasjóður í þeim tilvikum þar sem ekki er til nægjanlegt fé til úthlutunar úr Fræðslusjóði.
2. grein.
Aðeins félagar í LFÍ geta sótt um styrk úr sjóðunum.
Úthlutun úr sjóðunum er í höndum sjóðastjórnar LFÍ, sem kosin er fyrir aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands.
3. grein.
Hlutverk sjóðanna er að styrkja:
- Námskeiðahald fyrir lyfjafræðinga í þeim tilgangi að bæta lyfjafræðilega þjónustu við almenning.
- Útgáfu upplýsingabæklinga um rétta og hagkvæma notkun lyfja.
- Verkefni sem stuðlað geta að betri og skilvirkari nýtingu lyfja.
- Hvert það verkefni sem að mati sjóðastjórnar hvetur til bættra starfshátta í lyfjafræði og lyfjafræðilegrar umsjár.
- Vísinda- og rannsóknarstörf sem og sí- og endurmenntun lyfjafræðinga með það að markmiði að efla þá í starfi.
4. grein.
Höfuðstóll Fræðslusjóðs er Lyfsölusjóður. Tekjur sjóðsins eru að jafnaði ávöxtunartekjur hans og skulu þær leggjast við höfuðstól sjóðsins.
Úthlutunarfé Fræðslusjóðs fyrir úthlutanir í mars 2026 til og með óktóber 2029 verður allt að 3,5% af höfuðstól sjóðsins eða allt að 90% af tekjum (rauntekjum) síðasta árs. Hvor upphæðin sem er hærri. Eftir úthlutun október 2029 verður úthlutunarfé Fræðslusjóðs allt að 90% af tekjum (rauntekjum) síðasta árs.
Tekjur Vísindasjóðs eru framlag að tillögu stjórnar LFÍ til samþykktar á aðalfundi hverju sinni og gjafir og styrkir sem sjóðnum kunna að hlotnast. Tekið er mið af stöðu Fræðslusjóðs hverju sinni við ákvörðun framlags LFÍ í Vísindasjóð.
Úthlutunarfé Vísindasjóðs er öll upphæð á reikningi sjóðsins.
Það fé sem ekki er úthlutað úr Fræðslusjóð á hverju starfsári frá mars 2026 til og með október 2029 leggst ekki við það fé sem kemur til úthlutunar á næsta ári. Eftir úthlutun í október 2029 mun það fé sem er ekki úthlutað úr fræðslusjóði leggjast við það fé sem er til úthlutunar á næsta ári.
5. grein.
Sjóðastjórn skal auglýsa eftir umsóknum um styrki tvisvar á ári. Styrkþegar skulu skila áfangaskýrslu/greinargerð um viðameiri verkefni til skrifstofu LFÍ. Sjóðastjórn getur fallið frá kröfu um skil á greinargerð.Í ársskýrslu skal gerð grein fyrir úthlutun úr sjóðum.
6. grein.
Ársskýrsla og endurskoðaðir reikningar skulu lagðir fram á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands.
7. grein.
Stjórn sjóðsins skal setja sér skriflegar verklagsreglur um meðferð umsókna og skulu þær birtar á heimasíðu LFÍ.
8. grein.
Um breytingar á reglugerð þessari fer á sama hátt og um lagabreytingar Lyfjafræðingafélags Íslands.
9. grein.
Reglugerð þessi var samþykkt á aukaaðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 5. desember 1999 og öðlaðist gildi 1. janúar 2000.
Með breytingum samþykktum á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 23. mars 2007.
Breytingum samþykktum á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 23. mars 2010
Breytingum samþykktum á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 20. mars 2019.
Breytingar samþykktar á aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 30. mars 2022.
Breytingar samþykktar á 4 gr. er varðar úthlutunarfé aðalfundi Lyfjafræðingafélags Íslands 26. mars 2026.